Hellu...vil nú byrja á að óska Helgu,Pésa og
Hilmari með stelpuskottuna sem var aldeilis farin að láta
bíða eftir sér...en eins og ég hef áður sagt.."góðir hlutir
gerast hægt" en þau koma að lokum..innilega til
hamingju
Ég skutlaði pabba á Akureyri í gærkvöldi, hann
var þá búin að stoppa í 9 daga og ég held honum hafi nú
ekkert mikið langað að fara svo vel fílaði hann sig á Húsó
það var líka ótrúlega fínt að komast af og til hingað og
þangað án þess að klæða börnin og koma þeim út osfrv...heldur
var pabbi nokkrum sinnu heima með börnin, á meðan skrapp ég á
fund einu sinni, í búðina og allskonar...jú meirissegja
skrapp ég í áhugasviðskönnun í vikunni og fékk niðurstöður í
gær..já já ekkert sem kom mikið á óvart...en samt er eitthvað
svo skrýtið að ég hef þá tvisvar farið í svona áður og
samkvæmt þessum niðurstöðum þá ætti ég að vera
hjúkrunarfræðingur....eða læknir....og í 3-5 sæti kom svo
rannsóknarverkefni gætu höfðað til mín einnig allskonar
ráðgjöf, fjölskylduráðgjafi,félagsráðgjafi osfrv...jú það
gæti ég hugsað mér..ekki læknir..Já það var sem sagt gaman að
kíkja á þetta..en það hefði ég aldrei gert ef pabbi hefði
ekki alltaf verið að henda mér út
svo er hollt fyrir
börnin að fá að umgangast afa sína og ömmur!
svo er auðvitað komin helgi og ég get ekki tjáð
mig nógu mikið um hvað ég er fegin því...ég er voðalega mikið
í breytingahugleiðingum þessa dagana...vinnulega séð...finnst
svolítið eins og að minn tími á leikskóla sé kominn nóg
samt eru einhver tímamót hjá mér því að núna verð ég að taka
ákvörðun..skóli eða vinna alla ævina á leikskóla og þessu
líka ofurlaunum...og rólegheitum..not...það er best ég mæti í
hjúkkubúning á mánudaginn í vinnuna og athugi hvernig ég fíla
mig þann daginn....svo gæti ég mætt næsta dag með
hlustunarpípuna.............
Þakið er komið á HÚSIÐ vei vei vei ....tveir
snillingar unnu í nokkra daga og smelltu þakinu á...og
´þvílík breyting!!!!! reyndar er þakið rautt og húsið hvítt
og blátt..tónar ekki vel...en vonandi komum við okkur í að
mála grunninn og það sem er blátt...einhverntíman..það verður
sko dökkgrátt......en húsið er æðislega
flott...
Það er aðeins vika þar til við förum bara 4 í
sumarbústað ....bara yfir helgi...ég hlakka voða mikið
til.....bara labba,éta,fara í pottinn..rúnta á
akureyri....lúlla...vonandi verður gott veður og allir
hraustir.....
Jæja ég er eitthvað þreytt...og andlaus og
vitlaus...hef alveg helling að gera..en sit hér með börnunum
mínum og þau að horfa á brúðubílinn með
popp...
Bla bla bla ble ble ble
Jóhanna Læknir
og fjölskylduráðgjafi..Brún Húsavík
(hmmm kemur vel út á prenti....)